Leshringur: Slepptu mér aldrei

Slepptu mér aldrei

 

Þriðjudaginn 20. mars klukkan 20.00 hittist  Leshringur Bókasafns Reykjanesbæjar í safninu og ræðir bók mánaðarins.

Bókin sem verður tekin fyrir að þessu sinni heitir Slepptu mér aldrei og er eftir höfundinn Kazuo Ishiguro. Höfundurinn var m.a. tilnefndur til Man Booker verðlaunanna fyrir bókina og vakti hún gríðarlega athygli. 

Allir hjartanlega velkomnir!