Um Átthagastofu

Reykjanes

Viltu fræðast um átthaga þína? 
Bókasafn Reykjanesbæjar heldur sérstaka átthagadeild með bókum og innbundnum tímaritum sem fjalla um byggðir og fólk á Reykjanesskaganum sunnan Hafnafjarðar. 

Hér gefur að líta skrá yfir helstu bækur sem fjalla eingöngu um þetta svæði: 
Listi yfir heimildir um Reykjanes, sunnan Straums

 

Að auki hefur efni um átthagana verið safnað í gagnagrunna sem eru aðgengilegir á vef safnsins, sjá Gagnagrunnur um Suðurnes, annars vegar efni úr tímaritinu Faxa og hins vegar úr hinum ýmsu ritum í bókakosti safnsins (s.s. ferðabókum og æviþáttum), fjölmörgum afmælisritum og Árbók Suðurnesja, svo eitthvað sé nefnt.

 

Hildur Harðardóttir, kennari við Holtaskóla, hefur góðfúslega veitt okkur leyfi til að  birta BEd. ritgerð sína frá KHÍ um þjóðsögur af Reykjanesi hér á vefnum, Þjóðsögur af Reykjanesi.

 

Ferðamálasamtök Suðurnesja reka ferðavef um Reykjanesið  www.reykjanes.is