Sumarlestur 2023

Sumarlestur

Í Bókasafni Reykjanesbæjar í allt sumar frá
júní til september; fjölbreyttur og skemmtilegur!

 

Öll börn á skólaaldri eru hvött til þess að taka þátt. 

 

Það er gaman að lesa, með því að lesa skemmtilegar bækur og taka þátt í fjölbreyttum sumarlestrar leikjum hjálpum við börnum að viðhalda þeirri lestrarfærni sem náðst hefur í skólanum. Þess vegna leggur Bókasafn Reykjanesbæjar áherslu á yndislestur barna og býður upp á  fjölbreytta og skemmtilega dagskrá í tengslum við sumarlestur frá 1. júní til 31. ágúst.   

   

Lestrarleikirnir í ár eru ekki ólíkir því sem safnið hefur boðið upp á síðustu ár. Þema ársins er Leitin að ævintýraheimum sem leiðir börn um ævintýraheima barnabókmenntanna og hvetur börn til að heimsækja bókasöfn, safna límmiðum og lesa bækur af ýmsum toga yfir sumartímann. Við verðum einnig með bingó, ratleik, orðleit og óvissupakka líkt og síðustu ár en jafnframt stefnir safnið á að vera með skemmtilegt föndur í bókasafninu í sumar. Lesturinn verður hægt að skrá á þátttökuseðil sem hægt verður að skila í Bókasafn Reykjanesbæjar, á heimasíðu safnsins eða í skólabókasafn. Dreginn verður út lestrarvinningur í hverri viku í allt sumar. Auk þess sem sá grunnskóli í Reykjanesbæ sem er með mesta þátttöku nemenda sinna hlýtur bókagjöf í lok sumarlesturs.   

   

Bókasafn Reykjanesbæjar Ævintýri líkast í allt sumar!   

    

Sumarlestur er tilvalin samverustund fyrir fjölskyldur, við hvetjum foreldra til að taka þátt í honum, hjálpa börnum sínum við að velja lestrarefni og hafa gaman að. Lestrarspilin eru frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri.  


Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.

 

 

Þátttökuseðill 

 

 Sumarlestursspil (pdf)     -    Leiðbeiningar með sumarlestursspili (pdf)   -   Spilaskráningarform

 

Sumarlesturbingó - 1 (pdf)   -   Sumarlestrarbingó - 2 (pdf)    -   Sumarlestrarbingó - 3 (pdf)

 

Bókaskrá (pdf)