Rafbókasafnið
Rafbókasafnið
- Rafbókasafnið byggir á OverDrive rafbókaveitunni.
- Þú þarft gilt bókasafnskort og PIN-númer hjá Bókasafni Reykjanesbæjar.
- Þú skráir þig inn á Rafbókasafnið með strikamerkisnúmeri á bókasafnskortinu þínu (GE-númeri) og PIN-númeri. Þú getur einnig skráð þig inn með Facebook eða sérstökum OverDrive-aðgangi en til þess að fá lánað þarftu að gefa upp GE-númer og PIN í fyrsta skipti sem það er gert.
- Þú getur valið hvort þú færð bók að láni í 7, 14 eða 21 dag.
- Þú getur haft 5 bækur að láni í einu og sett inn 7 frátektir.
- Bók sem hefur verið tekin að láni skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum og því er engin hætta á dagsektum. Auðvitað er líka hægt að skila fyrr.
- Hægt er að lesa rafbækur eða hlusta á hljóðbækur frá Rafbókasafninu í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum og því er ekki nauðsynlegt að hlaða niður neinum forritum til þess.
- Viljir þú lesa eða hlusta án þess að vera nettengd(ur) þarftu að ná þér í OverDrive appið eða Adobe Digital Editions forritið og hlaða bókinni niður.
OverDrive appið
- OverDrive appið er fáanlegt fyrir iPhone®, iPad®, Android, Chromebook, Windows Phone, Windows 8 & 10, Kindle Fire HD og má nálgast t.d. í veiðeigandi veitum svo sem Play Store og App Store. Lesa má nánar um appið og sækja það á http://app.overdrive.com/.
Lesbretti
- Hægt er að lesa bækur Rafbókasafnsins á þeim lesbrettum sem notast við ePub formið. Þetta eru flestar gerðir lesbretta aðrar en Kindle. Ekki er hægt að lesa bækur Rafbókasafnsins í Kindle lesbrettum að Kindle Fire undanskildu.
- Ef ætlunin er að lesa rafbók á lesbretti þarf að stofna Adobe ID-aðgang og hlaða niður Adobe Digital Editions forritinu á tölvu.
- Bókinni er svo hlaðið niður í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.
Aðstoð
- Aðstoð við uppsetningu, skráningu og almenna notkun á Overdrive er í afgreiðslu bókasafnsins.
- Hér má einnig finna leiðbeiningar um hvernig setja á upp og skrá sig í Rafbókasafnið.