Samkomulag við Bókasafn Norræna hússins

Norræna bókasafniðSamkomulag milli Bókasafn Norræna hússins (BNH) og Bókasafns Reykjanesbæjar (BR)

Samkomulag þetta felur í sér eftirfarandi hlunnindi og skyldur:

· Að íbúar með heimilisfang í Reykjanesbæ sem vilja nýta sér norrænan safnkost í BNH fái ókeypis bókasafnskort í safninu.

· Að lánþegar frá Reykjanesbæ sem koma í BNH verði skráðir jafnóðum niður á sérstakt blað og í lok hvers árs sendi BNH reikning fyrir bókasafnkortunum til BR.

· Að gestirnir frá Reykjanesbæ verði að koma í BNH til að fá safnkost að láni og skila honum þangað. Samkomulaginu er ætlað að koma í veg fyrir kostnað við póstsendingar og millisafnalán.

· Samkomulaginu er ætlað að gefa íbúum Reykjanesbæjar, sem vilja fá aðgang að norrænum safnkosti að láni, möguleika til þess þar sem það efni er ekki til í bókasafni Reykjanesbæjar.