Kökuform

Bókasafn Reykjanesbæjar hefur til útlána kökuform af ýmsum stærðum og gerðum.  Í meðfylgjandi skjali má sjá hvaða kökuform við erum með í boði hverju sinni. 

Kökuform (pdf)

Flest kökuformin tengjast bókmenntum og persónum í bókum á einhvern hátt.

Athugið að útlánatími kökuforma eru 7 dagar og þau mega ALLS EKKI fara í uppþvottavél. Það eyðileggur húðina á formunum.

 
Viðmiðunargjald fyrir týnd form eða kökuform sem skemmast í meðförum lánþega er 3.000 kr.

 

Deilihagkerfið er svo dásamlegt !