Fast þeir sóttu sjóinn - Bátasafn Gríms Karlssonar

Fast þeir sóttu sjóinn

Bátasafn Gríms Karlssonar - Byggðasafn Reykjanesbæjar

Byggðasafnið hefur opnað endurgerða sýningu á bátalíkönum Gríms Karlssonar í Bryggjuhúsinu. Bátafloti Gríms Karlssonar var fyrsta sýningin sem opnuð var í Duus Safnahúsum fyrir nærri 19 árum og hefur nú fengið endurnýjun lífdaga í rými sem skapar áhugaverða umgjörð um bátalíkönin. Á nýju sýningunni gefur að líta nánast öll módel Gríms í eigu Byggðsafnsins, sem eru alls 136 bátalíkön.  

Jafnframt eru líkönin nýtt til að segja sögu vélbátaútgerðar í Keflavík og Njarðvík. Þar er einnig fjallað um hafnargerð, skipasmíðar, veiðar og annað er tengist útgerðinni. Þá mun sýningargestum gefast kostur á því að taka í stýrið innan í endurgerðu stýrishúsi og skut í raunstærð á minni gerð vélbáta.  

Titill sýningarinnar er fenginn úr þekktu dægurlagi, þar sem segir „Fast þeir sóttu sjóinn, Suðurnesjamenn“, og er sýningunni ætlað að gefa gestum innsýn í þennan mikilvæga þátt í atvinnulífi Suðurnesjamanna þar sem allt snerist í aldir og áratugi um fiskveiðar. Eins og reyndar víðast hvar hér á landi þar sem uppgangur vélbátaútgerðar var hin mikla iðnbylting og undirstaða flestra þorpa og bæja á Íslandi.

 Hægt er að fræðast nánar um bátamódelin og Grím Karlsson á sérstakri vefsíðu hér.