List sem gjaldmiðill - ARTMONEY Nord

ARTMONEY NORD er myndlistarverkefni þar sem listamenn af Norðurlöndunum skapa sinn eigin gjaldmiðil. Sýningin stóð yfir í Átthagastofu Bókasafnsins frá 30. ágúst 2018 til 16. október 2018.

Artmoney er val um „gjaldmiðil“ þar sem hægt er að velta fyrir sér hvað er sanngjarnt menningar- og efnahagslegt verðgildi í listum.

 ARTMONEY NORD er hópur norrænna listamanna sem deila í þessu verkefni sínum persónulegu hugmyndum um hvernig við metum list að verðleikum og hvernig þær hugmyndir eru hreyfanlegar og mynda með sér nýjar tengingar.

 Verkefnið samanstendur af sýningum, vinnustofum listamanna ásamt formlegum og óformlegum fyrirlestrum. Verkefnið hófst á bókasafninu í Árhúsum, Dokk1 sumarið 2017 á hátíðarviku Árhúsa og  hefur verkefnið einnig farið fram í TRYK2 í listaviku Bornholm, Norrænu stofnuninni í Álandseyjum og Rikhardinkatu Bókasafninu í Helsinki.

artmoney sýning

artmoney sýning

artmoney sýning

 artmoney sýning