Upplýsingaþjónusta

Bókasafnið veitir aðstoð við upplýsinga- og heimildaleitir

Upplýsingaþjónusta

Bókasafnsfræðingar eru á vakt við upplýsingaþjónustuborð virka daga kl. 09-15.30. Þar er hægt að fá upplýsingar um safnkostinn, auk þess er veitt aðstoð og ráðgjöf við leit að gögnum, heimildum og upplýsingum. Upplýsingaþjónustan er fyrir alla, einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki hvort sem er vegna starfs, náms eða áhugamála.

Einnig leiðbeina starfsmenn upplýsingaþjónustunnar notendum á sviði upplýsingalæsis, s.s. varðandi val og notkun viðeigandi hjálparmiðla við upplýsingaöflun.

Leitaðu til okkar

Upplýsingaþjónusta er viðskiptavinum að kostnaðarlausu, en greiða verður fyrir ljósrit og útprentanir úr tölvu. Hægt er að senda fyrirspurnir til upplýsingaþjónustu á netfangið bokasafn@reykjanesbaer.is eða á facebook síðu safnins og verður þeim svarað eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan sólarhrings á virkum degi. Alla jafna verður upplýsingaleitin markvissari ef viðskiptavinurinn er á staðnum. Þá er hægt að bera beint undir hann niðurstöður leitarinnar.

Aðstoð er veitt við að nálgast efni sem ekki er á safninu (millisafnalán) gegn gjaldi.