Þriðjudaginn 22. maí klukkan 20.00 hittist Leshringur Bókasafns Reykjanesbæjar í safninu. Bókin sem verður tekin fyrir að þessu sinni heitir Sakramentið og er eftir höfundinn Ólaf Jóhann Ólafsson. Heitt á könnunni og allir hjartanlega velkomnir.