Jólaskiptimarkaður - leikföng, barnabækur og spariföt

Dagana 5.-10. desember mun Bókasafn Reykjanesbæjar bjóða upp á viðburði sem miða að því að gera jólin umhverfisvænni. 

Miðvikudaginn 5. desember kl. 18-20 verður haldinn jólaskiptimarkaður í bókasafninu. Þar geta allir mætt með notuð (en vel farin) leikföng, spariföt barna og barnabækur og tekið sér nýja/notaða hluti heim í staðinn.

Kynnt verða „30 vistvæn ráð fyrir jólin“ til þess að draga úr sóun yfir jólahátíðina.