Hrekkjavökuföndur í vetrarfríi grunnskólanna

Vetrarfrí grunnskólanna í Reykjanesbæ verður dagana 19.-22. október og verður bókasafnið því með skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. 

Boðið verður upp á föndur sem börn og fullorðnir geta dundað sér í saman. Börn á öllum aldri geta klippt út pappírsbrúður og hrekkjavökugrímur.

Ráðhúskaffi er með sérstakt tilboð alla dagana - hálft panini og kókómjólk/safi á 500 kr. 

Opnunartími bókasafnsins og Ráðhúskaffi er:

Föstudagurinn 19. okt: 9-18

Laugardagurinn 20. okt: 11-17

Mánudagurinn 22. okt: 9-18.