Fyrsti hittingur leshringsins á nýju ári

Þriðja þriðjudag í mánuði yfir vetrartímann er leshringur í Bókasafni Reykjanesbæjar klukkan 20.00. Boðið er upp á kaffi og öll áhugasöm velkomin. Umsjón með klúbbnum hefur Unnur Ósk Wium Hörpudóttir, nemi í bókmenntafræði. Í þetta sinn ætlar hópurinn að fara yfir hvað hann hefur verið að lesa og jafnvel mæla með bókum. Við hittumst þriðja þriðjudag í mánuði sem er 16. janúar að þessu sinni.

 

Allir nýjir og gamlir lesendur velkomin!

Hvar: Bókasafnið
Hvenær: Þriðjudaginn 16. janúar kl. 20.00
 
Gengið er inn norðanmegin við húsið (hjá bílastæði).

 

Hér er facebook hópur Leshringsins þar sem hægt er að fylgjast með hvaða bækur eru teknar fyrir