Foreldramorgunn: Lestur fyrir ung börn

Lestur fyrir ung börn

 

Anna María Cornette deildarstjóri barna- og unglingastarfs í Bókasafni Reykjanesbæjar kemur á Foreldramorgunn fimmtudaginn 26. apríl klukkan 11.00.

Hún fjallar um mikilvægi lesturs í uppeldi ungra barna og hvaða þjónustu Bókasafnið veitir börnum og unglingum.

Allir foreldrar og börn hjartanlega velkomin. 

Minnum á afsláttinn á Ráðhúskaffi, 15% af hádegismatseðli.