Bókabíó: Mr. Popper's Penguins

Föstudaginn 28. septemberkl. 16.30 verður kvikmyndin Mr. Popper's Penguin sýnd í Bókabíó Bókasafns Reykjanesbæjar. 

Myndin er byggð á samnefndri bók og hentar börnum frá 6 ára aldri. 

Myndin er í 95 mínútur og er þetta tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna að mæta í bókasafnið og horfa á mynd saman í notalegri stemningu. 

Ráðhúskaffi er með tilboð: Frappuccino og kleinuhringur á 850 kr.