Afmælisdagur Harry Potter 31. júlí 2023

Mánudaginn 31. júlí á Harry Potter afmæli, og því ber að fagna!
 
Dagskrá:
 
Kl. 10-17 Töfrandi föndur og sokkasmiðja Dobbys.
Kl. 11-17 Galdraspil í miðju bókasafnsins.
Kl. 11-15 Leitin að gullnu eldingunnni í Hólfinu. Hjálpaðu Harry að finna gullnu eldinguna og taktu þátt í lukkuleik. ⚡
Kl. 14-16 Skelltu á þig flokkunarhattinum til þess að komast að því hvaða heimavist þú tilheyrir.
 
Á safninu verða einnig til sýnis ýmsir munir frá galdraheiminum.
 
Við hlökkum til þess að sjá sem flesta og hvetjum fólk til þess að mæta í búning!
 
Allt galdrafólk og muggar velkomið! Kostar ekkert!