Ofurhetjur fara sínar eigin leiðir | Sýningaropnun

Sýningin Ofurhetjur fara sínar eigin leiðir verður opnuð í Bókasafni Reykjanesbæjar fimmtudaginn 1. september kl. 17.00. Á sýningunni verða munir, bækur og blöð er tengjast ofurhetjuheiminum. Hvetjum alla til þess að koma í sínum ofurhetjubúningum. Mögulega gerist starfsfólk Bókasafnsins ofurhetjur :)

Hvar: Átthagastofa | Bókasafn

Hvenær: 1. september kl. 17.00

Öll hjartanlega velkomin og aðgangur er ókeypis.