Notaleg sögustund

Laugardaginn 23. mars kl. 11.30 er Notaleg sögustund með Höllu Karen.

Halla Karen les og syngur úr sígilda ævintýrinu Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner.

Sögustundir Höllu Karenar hafa notið mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar og er hún á dagskrá í Bókasafninu síðasta laugardag hvers mánaðar (lokað 30. mars).  Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. 

Kostar ekkert og öll hjartanlega velkomin!