Notaleg sögustund

Laugardaginn 24. febrúar kl. 11.30 er Notaleg sögustund með Höllu Karen.

Halla Karen les og syngur eitt vinsælasta ævintýri norska höfundarins Thorbjörns Egners um Kardemommubæinn. 

Sögustundir Höllu Karenar hafa notið mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar og er hún á dagskrá í Bókasafninu síðasta laugardag hvers mánaðar. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. 

Kostar ekkert og öll hjartanlega velkomin :)