Ljóðalabb í tilefni Dags íslenskrar tungu
13.-23. nóv
Viðburðir bókasafn
~Íbúum Reykjanesbæjar er boðið í Ljóðalabb í efri byggðum Keflavíkur~
Í tilefni Dags íslenskrar tungu, 16. nóvember, hefur starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar hengt upp ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.
Ljóðin munu prýða nokkra vel valda ljósastaura í efri byggðum Keflavíkur (göngustígur aftan við Hlíðarhverfi og áfram í gegnum göngustíg við Eyjabyggð) í rúma viku og eru bæjarbúar hvattir til að njóta útiveru og næra lífsblómið með fallegum ljóðum Jónasar í leiðinni.
Viljir þú deila mynd af þinni gönguferð með myllumerkinu #ljóðalabb biðjum við þig að skora á vini og vandamenn að fara í nærandi göngu.