Krakkajóga með Sibbu | Heilsu- og forvarnarvika

Í tilefni heilsu - og forvarnarviku býður Bókasafn Reykjanesbæjar upp á krakkajóga laugardaginn 30. september kl.12.00-12.30.

Sigurbjörg Eydís Gunnarsdóttir leikskólakennari og jógaleiðbeinandi leiðir tímann þar sem farið verður í skemmtilegar æfingar, öndun og slökun.

 

Tilvalin afþreying fyrir alla fjölskylduna!

 

Ókeypis er á viðburðinn og öll börn hjartanlega velkomin :)