Upplestur og söngur í Bókasafninu fyrir öll börn

Bjarni Fritzson höfundur Salka; hrekkjavakan og Bergrún Íris Sævarsdóttir höfundur VeikindaDagur lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum. Regnbogaraddir, barnakór Keflavíkurkirkju flytja nokkur lög.

Hvar: Bókasafn | Miðjan
Hvenær: Laugardaginn 25. nóvember kl. 11.30 til 12.30

 

Djús og piparkökur fyrir alla krakka :) Aðgangur ókeypis og öll velkomin!

Um bókina Salka: Hrekkjavaka: " tilefni af hrekkjavökunni setti TikTok-stjarnan Gabbi Galdur af stað #graskeraáskorun. Við vinirnir ákváðum að taka þátt enda VIP-boðsmiði í hræðilegasta draugahús Íslandssögunnar í boði og það á sjálfri hrekkjavökunni. Sú ákvörðun átti eftir að verða okkur dýrkeypt og hrinti af stað einni svakalegustu atburðarás lífs míns." (forlagid.is).

Um bókina VeikindaDagur: "Þetta byrjaði þegar ég gleymdi að taka lyfin. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu … dáinn og stjarfur á köldu stálborðinu. Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?" (forlagid.is).

Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja