Bókabíó: Emil og grísinn

Föstudaginn 18. október kl 16.30 verður myndin Emil og grísinn sýnd í Bókabíói Bókasafns Reykjanesbæjar.

Skammarstrik Emils eru víst fleiri en eyjarnar í Breiðafirði, er mamma hans vön að segja. En hann hefur einnig tíma til að gera heilmargt annað. Á uppboðinu í Backrova gerir Emil sérkennileg viðskipti. En það merkilegasta gerist þegar að Emil bjargar lífi nýgotins grís. Emil hugsar ekki bara vel um grísinn, hann kennir honum að sitja, hoppa og gera margar aðrar kúnstir. Enginn í Hlynskógum hefði getað ímyndað sér að lítill grís gæti gert svona nokkuð.

 

Myndin er 93 mínútur og enginn aðgangseyrir.