Sumarlestur er mikilvægur því hann viðheldur og eflir lestrarfærni sem börnin hafa náð í vetur. Eftir langan vetur eru flest börn þó reiðubúin í að breyta til og brjóta upp hina daglegu rútínu. Sumarlestur bókasafnsins er því gerður skemmtilegur og fjölbreyttur.
Þegar fyrsta bingóspjaldinu hefur verið skilað er hægt að nálgast fleiri í safninu. Einnig verður orðaleit í boði en það er skemmtileg leið til að leika sér með tungumálið og auka orðaforða.
Öll börn fá bókaskrá en henni skila börnin til kennara sinna þegar skólinn byrjar aftur í haust.Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.
Skráning hér fyrir neðan!