Ljóðalestur vinningshafa í ljóðasamkeppni á Suðurnesjum 2022

Ljósberinn Menningarfélagið Bryggjuskáldin efnir til ljóðasamkeppni á Suðurnesjum.

 Reglur keppninnar eru einfaldar: Innsent ljóð má ekki hafa birst áður og æskilegt er að það fjalli um Suðurnesin á einn eða annan hátt.

 Veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið að mati dómnefndar og auk þess fá tvö ljóð í viðbót viðurkenningu.

 

Í dómnefnd sitja skáldin Anton Helgi Jónsson, Eyrún Ósk Jónsdóttir, Guðmundur Magnússon og Þýðandinn Helga Soffía Einarsdóttir.

 Ljóðin skal merkja með dulnefni ásamt nafni, heimili, netfangi og símanúmeri höfundar í öðru lokuðu umslagi með sama dulnefni merkt „Ljósberinn“ til Bókasafns Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ.

 Skilafrestur rennur út 30 ágúst. Einnig má senda ljóðin ásamt upplýsingum um höfund á netfangið: Stefania.Gunnarsdottir@Reykjanesbaer.is ef það hentar betur.

 Tilkynnt verður um úrslit á Ljósanótt 2022. Þá munu vinningshafar lesa upp ljóðin sín og taka við viðurkenningu. Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Magnússon gudmundur@steinbogi.is