Lesið og skrifað með múmínálfunum

Þann 26. mars sl. opnaði sýning um Múmínálfa í Átthagastofu bókasafnsins.

Sýningin býður upp á gagnvirka leið til að kynnast stafrófinu um leið og farið er í skoðunarferð um hinn töfrandi Múmíndal.

Saman geta börn og fullorðnir kynnt sér fígúrur og sögur úr Múmíndalnum og rætt tilfinningar eins og vonbrigði, sorg og ævintýraþrá. Sýningin er opin á opnunartíma safnsins, aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

 

Sýningin er fengin frá Norræna húsinu sem er unnin í samvinnu við Moomin Characters.

Sýningin er  opin á opnunartíma safnsins. Lokadagur Múmínsýnigar er föstudagurinn 19. ágúst.