Höfundar lesa upp úr bókum sínum á Bókakonfekti barnanna 2019

Bókakonfekt barnanna – upplestur fyrir börn úr jólabókunum 2019 fer fram föstudaginn 29. nóvember kl. 17.00.

- Bergrún Íris Sævarsdóttir les upp úr nýjum bókum sínum Langelstur í bekknum og Kennarinn sem Hvarf.

- Kristín Ragna Gunnarsdóttir les upp úr nýrri bók sinni Nornasaga - Hrekkjavakan.

 

Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Líkt og áður býður Ráðhúskaffi upp á heitt súkkulaði og piparkökur.

 

Öll hjartanlega velkomin – tilvalin gæðastund fyrir fjölskylduna.

Dagskráin er styrkt af Uppbyggingasjóði Suðurnesja.