Heilsufarsskoðun í Bókasafninu

Í tilefni af Heilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ ætlar Samtakahópurinn í samstarfi við Brunavarnir Suðurnesja að bjóða upp á heilsufarsskoðun þriðjudaginn 26. september frá kl. 12.00 – 17.00. 

Skoðunin fer fram á Bókasafni Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12.

 

Blóðþrýstingur- súrefnismettun, púls og blóðsykur. Heilsufarsskoðunin er ókeypis og öll velkomin!