Heilsu- og forvarnarvika

Í tilefni Heilsu- og forvarnarviku Reykjanesbæjar má finna úrval heilsutengdra bóka  í Rafbókasafninu. 

 Inn á hlekknum hér fyrir neðan má sjá þær bækur sem starfsfólk Rafbókasafnsins hefur tekið saman fyrir heilsu- og forvarnarvikuna:

https://rafbokasafnid.overdrive.com/collection/1121389

Athugið að nauðsynlegt er að eiga bókasafnskort til að skrá sig inn á Rafbókasafnið. 

 

Hér má nálgast nánari upplýsingar um Rafbókasafnið og skráningu:

https://sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn/safnakostur/rafbokasafnid

 

 

Vissir þú að lestur getur:
 
* Aukið samkennd
- með því að sjá heiminn úr öðru sjónarhorni en þínu eigin átt þú betra með að skilja og sjá sjónarmið annara.
 
* Haldið heilanum þínum heilbrigðum.
 - Alveg eins og það er mikilvægt að halda vöðvum líkamans í hreyfingu til að hægja á öldrun er mikilvægt að þjálfa heilann. Að lesa eða pússla getur hægt á heilabilun vegna öldrunar eða Alzheimers sjúkdómnum.
 
*Dregið úr streitu.
- Háskólinn í Sussex sýndi fram á í rannsókn að streita hjá þátttakendum lækkaði um 68% við það að lesa í 6 mínútur. Já þú last rétt - 6 MÍNÚTUR!
 
*Hjálpað þér að sofa betur.
- Bláa ljósið sem kemur frá skjám snjalltækja ruglar melatónín framleiðslu líkamans. Melatónín er hormón sem hjálpar okkur að slaka á og sofna. Að skoða fréttir, tölvupóst eða samfélagsmiðla heldur okkur frekar virkum og stressuðum. Að kjósa frekar að lesa bók eykur gæði svefns og kemur þér fyrr í slökunarástand.
 
*Sett gott fordæmi fyrir yngri kynslóðina.
- Ef það skiptir þig máli að börnin þín læri góða siði er besta leiðin til að kenna þeim þá að fara eftir þeim sjálf. Það er mjög mikilvægt að lesa fyrir börn og ekki síður mikilvægt að setja gott fordæmi og lesa bækur heima.
 
 -þessir fróðleiksmolar voru lauslega þýddir af þessu vefsvæði: https://ravenreads.org/blogs/news/top-5-benefits-of-reading-books