Fornsögunámskeið

Þriðjudaginn 20. febrúar klukkan 19.30 verður annar hittingur (af fjórum) í námskeiði um Fóstbræðrasögu í Bókasafni Reykjanesbæjar.  Skráning er enn þá opin!

Íslenskukennarinn Anna Karlsdóttir Taylor stýrir námskeiðinu sem er á þriðjudagskvöldum frá 19.30 - 21.30, samtals 4 skipti. 
Námskeiðið kostar 4.000 kr. og innifalið er kaffi ásamt meðlæti. 


Skráning er nauðsynleg en hægt er að skrá sig í afgreiðslu safnsins eða hér.