Foreldramorgunn: Ungbarnamatur

Ungbarnamatur

 

Fimmtudaginn 1. febrúar klukkan 11.00 fjallar Ebba Guðný um leiðir til að útbúa hollan og góðan ungbarnamat á Foreldramorgni Bókasafns Reykjanesbæjar. 

Ebba Guðný Guðmundsdóttir, bókaútgefandi, heilsukokkur og umsjónarmaður þáttanna; Eldað með Ebbu á RÚV heldur erindi um heilsu og hollustu fyrir alla en með sérstaka áherslu á ungabörn og börn. Hún mun fara yfir einföld atriði sem allir ættu að geta tileinkað sér án mikillar fyrirhafnar til að bæta líðan og heilsu.

Ebba er þekkt fyrir að tala mannamál og hafa húmor fyrir sjálfri sér. Hún hefur sjálf barist við fæðuóþol og magavandræði frá unga aldri og hefur þess vegna garfað í heilsu og næringu í rúm 20 ár og er orðin hokin af reynslu. Hún lofar fræðslu sem nýtist flestum.

 

Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga í Bókasafni Reykjanesbæjar frá klukkan 11 - 12. Í annað hvert skipti er boðið upp á fræðslu sem tengist barnauppeldi og foreldrahlutverkinu. 

Í Ráðhúskaffi er boðið upp á 15% afslátt þegar Foreldramorgnar eru.

 

Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir