Foreldramorgunn: skyndihjálp

Fimmtudaginn 19. maí klukkan 11.00 verður Foreldramorgunn í Bókasafni Reykjanesbæjar. Að þessu sinni verður boðið upp á skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða krossins. Námskeiðið miðar að ummönnun ungra barna og hvernig skal bregðast við ef slys ber að höndum. Guðrún Ösp frá Rauða krossinum verður með erindið.

Hvar: Miðjan í bókasafninu

 Foreldrar hjartanlega velkomnir með krílin og erindið er ókeypis.