Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni Dags íslenskrar tungu hefur starfsfólk safnsins hengt upp ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.

Ljóðin munu prýða nokkra vel valda staði í Njarðvíkurskógum og eru bæjarbúar hvattir til að njóta útiveru og næra lífsblómið með fallegum ljóðum Jónasar í leiðinni.

 Viljir þú deila mynd af þinni gönguferð með myllumerkinu #ljóðalabb biðjum við þig að skora á vini og vandamenn að fara í nærandi göngu.

 

Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert. Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð.

Hvar: Njarðvíkurskógar

Hvenær: vikan 14. - 20. nóvember