Dagur íslenskrar tungu

#Ljóðalabb

Í tilefni Dags íslenskrar tungu, 16. nóvember, hefur starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar hengt upp ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.

 Ljóðin munu prýða nokkra vel valda staði meðfram strandleiðinni í rúma viku og eru bæjarbúar hvattir til að njóta útiveru og næra lífsblómið með fallegum ljóðum Jónasar í leiðinni.

 Viljir þú deila mynd af þinni gönguferð með myllumerkinu #ljóðalabb biðjum við þig að skora á vini og vandamenn að fara í nærandi göngu.

 

Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert. Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð.