Á réttri hillu með Virpi Jokinen

Ertu að drukkna í dóti?
 
Virpi Jokinen, vottaður skipuleggjandi, verður með fyrirlestur í Bókasafni Reykjanesbæjar fimmtudagskvöldið 5. mars kl. 20.00.
 
Við erum sífellt að takast á við breyttar aðstæður; börn fæðast, unglingar flytja að heiman, hjón skilja, nákomnir deyja. Öllum þessum breytingum fylgja gamlir og nýir hlutir. Er heimili þitt griðastaður eða óyfirstíganlegt verkefni alls konar hluta?
 
Virpi rekur fyrirtækið Á réttri hillu sem sérhæfir sig í því að veita skipulagsaðstoð fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. Virpi lauk námskeiði fyrir vottaða skipuleggjendur í Helsinki árið 2018 og er fyrsti starfandi skipuleggjandinn hér á landi.
 
Erindið fer fram á íslensku og allir hjartanlega velkomnir.