Sumarlestur út ágúst

Sumarlestur út ágúst

 

Sumarlestur í Bókasafni Reykjanesbæjar heldur áfram út ágúst og geta öll börn á grunnskólaaldri tekið þátt. 


Sumarlestur er mikilvægur því hann viðheldur og eflir lestrarfærni sem börnin hafa náð á sl. skólaár. Nú fer skólinn að byrja aftur og það er gott að koma lestrinum aftur í rútínu eftir vonandi notalegt sumar. 

Dregið verður úr öllum skráningum og lestrarleikjablöðum föstudagana 18. ágúst og 1. september. Athugið að tekið er við skráningum og leikjablöðum fram til klukkan 12.00 föstudaginn 1. september. 


RAFRÆN SKRÁNING Í SUMARLESTUR


Bókaskrár er hægt að nálgast í safninu en þeim skila börnin til kennara sinna.


Safnið er opið alla virka daga frá klukkan 09.00-18.00 og á laugardögum frá klukkan 11.00-17.00.

Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.

Nánari upplýsingar veita:

Anna Margrét Ólafsdóttir, verkefnastýra
Netfang: anna.m.olafsdottir@reykjanesbaer.is
Sími: 421 6774

Anna María Cornette, deildarstjóri barna- og unglingastarfs
Netfang: anna.m.cornette@reykjanesbaer.is
Sími: 421 6772