Upplestur og útgáfuhóf

Upplestur og útgáfuhóf fimmtudaginn 24. nóvember

Fimmtudaginn 24. nóvember klukkan 16.30 kemur Hildur Sif Thorarensen í heimsókn í Bókasafn Reykjanesbæjar.
Einfari er fyrsta bók Hildar sem kom út fyrir stuttu og ætlar Hildur að lesa úr bókinni fyrir gesti og gangandi. 

Klukkan 17.00 heldur bókafjörið áfram en Keflvíkingurinn Þröstur Jóhannesson fagnar útgáfu bókar sinnar Bjalla og bæjarstjórinn sem gat ekki flogið. Þröstur les upp úr bók sinni og áritar bókina.