Það er opið í Bókasafni Reykjanesbæjar

Mikil gleði er meðal gesta og starfsmanna bókasafnsins þegar safnið hefur verið opnað á nýjan leik.

Nú þegar safnið hefur verið opnað aftur viljum við minna á að skiladagur allra gagna í útláni er framlengdur til 14. maí og því nægur tími til þess að skila. Opnunartíminn er eins og áður virka daga frá kl. 9.00-18.00 og laugardaga frá kl. 11.00 til 17.00. Við hlökkum til að sjá ykkur og biðjum alla um að gæta fyllsta hreinlætis og huga að 2 metra reglunni.

Um sinn er ekki leyfilegt að vera fleiri en 50 inni í safninu (með starfsfólki). Því biðlum við til gesta að staldra stutt við í safninu, taka og skila, spritta sig, nota hanska og auðvitað að virða 2 metra regluna. 
 
Við viljum einnig benda á að engin dagblöð munu liggja frammi og öll aðstaða til þess að setjast niður og lesa hefur verið fjarlægð eða lokuð. Lesherbergi og salerni eru einnig lokuð um sinn. Bendum gestum á að  nota snertilausar greiðslur.