Náttúruupplifun fyrir börn og fjölskyldur
Náttúruupplifun fyrir börn og fjölskyldur
Við bjóðum ykkur velkomin á nýja sýningu í Átthagastofunni! Sumarsýning: náttúruupplifun fyrir börn og unglinga mun standa yfir í allt sumar og vaxa þegar líður á sumarið.
Sýningin er hluti af sumarlestri í Bókasafninu þar sem grunnskólanemendur keppast um hvaða skóli les flestar bækur. Eftir hverja bók sem nemandi les, fær hann/hún/hán skraut í einkennislit skólans síns sem hengja má upp á vegg sýningarsalsins.
Með þessu stækkar sýningin yfir sumartímann og hægt verður að fylgjast með árangri skólanna.
Uppskeruhátíð sumarlestursins
Í lok sumars fögnum við sumarlestrinum með uppskeruhátíð, föstudaginn 30. ágúst fyrir öll sem tóku þátt.
Grunnskólarnir sem lenda í 1. til 3. sæti sumarlesturskeppninnar, fá viðurkenningarskjal og peningaverðlaun fyrir bókakaupum.
Að því loknu verður Bingo í miðjunni og veglegir vinningar í boði.
Sýningin er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
Bókasafnið er opið 09.00 - 18.00 alla virka daga. Lokað er laugardaga á sumrin.