Memmm - föstudagar
21.11 kl. 10:00-12:00
Viðburðir bókasafn
Það er gaman að hitta aðra fullorðna með lítil börn, syngja saman, leika og læra.
Í samvinnu við Vinnumálastofnun býður Memmm upp á opinn leikskóla, Memmm Play, í Aðalsafni alla mánudaga kl. 13–15 og föstudaga kl. 10–12.
Skráning er óþörf og öll velkomin, en stundirnar eru hugsaðar fyrir fjölskyldur með ungabörn og börn á leikskólaaldri.
Heitt á könnunni.
Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskylduvænna samfélagi.
Þar vinna áhugasamir einstaklingar að því að skapa tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru og gæðastunda á fjölbreyttan hátt.
Komdu og vertu Memmm!
Hittingarnir eru þátttakendum að kostnaðarlausu.