Ljósanótt | Ljóðalestur vinningshafa í ljóðasamkeppni á Suðurnesjum 2023

Ljósberinn Menningarfélagið Bryggjuskáldin efnir til ljóðasamkeppni á Suðurnesjum í tilefni af Ljósanótt.

Vinningsljóðin úr keppninni verða tilkynnt föstudaginn 1. september kl. 16.00 í Miðju Bókasafnsins. Á sama tíma fer fram verðlaunaafhending. Öll velkomin og viðburðurinn er ókeypis.

 Reglur keppninnar eru einfaldar: Innsent ljóð má ekki hafa birst áður og æskilegt er að það fjalli um Suðurnesin á einn eða annan hátt.

 Veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið að mati dómnefndar og auk þess fá tvö ljóð í viðbót viðurkenningu.

 Í dómnefnd sitja skáldin: Anton Helgi Jónsson, Ragnheiður Lárusdóttir, Guðmundur Magnússon, Gunnhildur Þórðardóttir og þýðandinn Helga Soffía Einarsdóttir.

 Ljóðin skal merkja með dulnefni ásamt nafni, heimili, netfangi og símanúmeri höfundar í öðru lokuðu umslagi með sama dulnefni merkt „Ljósberinn“ til Bókasafns Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ.

 Skilafrestur rennur út 28. ágúst. Einnig má senda ljóðin ásamt upplýsingum um höfund á netfangið: Stefania.Gunnarsdottir@Reykjanesbaer.is ef það hentar betur.

 Tilkynnt verður um úrslit föstudaginn 1. september 2023. Þá munu vinningshafar lesa upp ljóðin sín og taka við viðurkenningu. Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Magnússon gudmundur@steinbogi.is