Erlingskvöld: Sigursteinn Másson, Þórarinn Eldjárn og Sólveig Jónsdóttir

Hið árlega Erlingskvöld verður haldið í Bókasafni Reykjanesbæjar fimmtudaginn 28. mars kl. 20.

Á hverju ári er haldið upplestrarkvöld í tilefni afmælis Erlings Jónssonar listamanns og verður þetta í 17. viðburðurinn sem haldinn er í bókasafninu.

Að þessu sinni lesa þrír höfundar úr nýjum verkum sínum. Sigursteinn Másson les upp úr bókinni Geðveikt með köflum, Sólveig Jónsdóttir les upp úr bókinni Heiður og Þórarinn Eldjárn les upp úr ljóðabókinni Vammfirring.

Söngkonan Fríða Dís syngur nokkur lög í upphafi kvölds.

Kaffi og konfekt í boði.

Erlingskvöld er styrkt af Uppbyggingasjóði Suðurnesja.