Föstudaginn 31. maí kl. 16.30 verður kvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum sýnd í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Myndin er byggð á samnefndri bók og hentar börnum á öllum aldri.
Myndin er í 95 mínútur, með íslensku tali. Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna að mæta í bókasafnið og horfa á mynd saman í notalegri stemningu.
Ráðhúskaffi er með tilboð: Frappuccino og kleinuhringur á 900 kr.