Yfirsýn - opnun

Þann 30. janúar opnaði í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar ljósmyndasýning Hilmars Braga Bárðarsonar sem ber yfirskriftina Yfirsýn. 

Hilmar Bragi  hefur starfað við fréttamennsku hjá Víkurfréttum í yfir þrjátíu ár. Samhliða starfi sínu sem blaðamaður hefur hann tekið ógrynni ljósmynda um öll Suðurnes og öðlast þannig góða yfirsýn yfir samfélagið á Suðunesjum.
 
Á þessari sýningu sýnir Hilmar Bragi ljósmyndir frá sjónarhorni sem við eigum ekki að venjast, allar myndirnar eru teknar með dróna og flestar lóðrétt niður.
 
Sýningin stendur fram í mars og allir hjartanlega velkomnir.