Trausti Björnsson fékk lestarverðlaun

Trausti Björnsson fékk lestrarverðlaun frá Bókasafni Reykjanesbæjar en hann hefur alla tíð lesið mikið og verið fastagestur í bókasafninu. 

Hægt er að skrá sig eða mæla með öðrum sem Lesanda vikunnar í bókasafninu. Tekin eru viðtöl sem birtast á heimasíðu bókasafnsins og í Víkurfréttum. Skráningarnar hafa verið góðar og því fá allir tækifæri til að fá lestrarverðlaun sem eru skráðir. Dregið er úr öllum nöfnum í lok hvers mánaðar í sumar. 

Hér er hægt að skrá Lesanda vikunnar.