Sýning opnuð um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi

Fimmtudaginn 11. apríl var sýningin ,,Kona á skjön - ævi og störf Guðrúnar frá Lundi" opnuð í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar.

Haldið var kaffiboð í anda Guðrúnar þar sem langömmubarn hennar, Marín Guðrún Hrafnsdóttir kynnti sýninguna og hélt spurningakeppni með spurningum úr bókum Guðrúnar. Gestir mættu með sparibollana sína og boðið var upp á kaffi og kleinur. 

Rithöfundarferill Guðrúnar frá Lundi er sannkallað ævintýri í íslenskri bókmenntasögu. Óþekkt kona norðan úr Skagafirði verður metsöluhöfundur nánast á einni nóttu og bækurnar  tróna á toppi vinsældarlista í rúma tvo áratugi. Hún er orðin 59 ára þegar fyrsta skáldsagan kemur út, eftir það skrifar hún 27 bækur í 11 skáldverkum.

Þetta gerðist í heimi fjölda hindrana fyrir alþýðukonu sem þráði að skrifa skáldsögur. Bústörf og barnauppeldi stóðu í veginum og ritvöllurinn var að mestu karlanna. Hún var dáð af stórum hluta þjóðarinnar en raddsterkir áhrifamenn flokkuðu verk hennar með erlendum afþreyingarbókmenntum og reyfararusli.

Um sýninguna:

Á sýningunni eru textaspjöld þar sem gestir geta fræðst um líf og störf Guðrúnar, einnig prýða persónulegir munir Guðrúnar sýninguna, s.s. svunta og blússa við peysuföt, brjóstnæla, sauðskinnsskór, biblía og bréf m.a. til útgefanda.

Sýningarhöfundar eru Kristín Sigurrós Einarsdóttir, leiðsögumaður og kennari, og Marín Guðrún Hrafnsdóttir bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar. 

Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-18 og laugardaga kl. 11-17 og mun hún standa til 15. júní 2019.

sýningaropnun Guðrún frá Lundi

sýningaropnun Guðrún frá Lundi

opnun sýningar um Guðrúnu frá Lundi

opnun á sýningu um Guðrúnu frá Lundi

opnun á sýningu um Guðrúnu frá Lundi