Sendiherra Noregs á Íslandi heimsækir Bókasafnið

Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs á Íslandi, heiðraði okkur með komu sinni í Bókasafn Reykjanesbæjar í gær. Tilefnið var að skoða sýningu um Kardemommubæinn í Átthagastofu safnsins en sýningin hefur staðið yfir frá því í janúar.

Rúmlega 1000 íbúar hafa skoðað sýninguna sem byggir á teikningum Thorbjörn Egner's úr Kardemommubænum. Mikil þátttaka hefur verið í getraun sem staðið hefur yfir á sama tíma og Lise dró út þriðja og síðasta vinningshafann sem var að vonum alsæll með verðlaunin.

Síðasti sýningardagurinn á Kardemommubænum er fimmtudagurinn 29. apríl.

Sendiherra NoregsSendiherra Noregs