Rafbókasafnið opnar

Rafbókasafnið 

 

Fimmtudaginn 1. júní verður opnað fyrir aðgang Rafbókasafnsins í Bókasafni Reykjanesbæjar. 


Með þessari nýjung geta notendur bókasafnsins nálgast fjölda titla hljóð- og rafbóka á auðveldari hátt en hingað til. Fyrst um sinn verður safnkostur einkum á ensku en vonast er til þess að íslenskir titlar bætist fljótlega við.
 
Það eina sem fólk þarf til að nálgast efni er gilt bókasafnsskírteini hjá Bókasafni Reykjanesbæjar en þess ber að geta að árgjaldið er einungis 1.850 krónur.  

Fjölmargir efnisflokkar standa lánþegum til boða, líkt og í hefðbundnu bókasafni. Þar er að finna spennusögur, ævisögur, efni fyrir börn og margt fleira þannig að allir ættu að finna þar eitthvað við sitt hæfi.
Hægt verður að nálgast efnið í flestum tækjum svo sem í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum.
 
Þjónustan er veitt í gegnum OverDrive rafbókaveituna en appið má finna í App Store og Play store og. Þjónustan er gjaldfrjáls fyrir notendur sem eiga gilt bókasafnsskírteini í Bókasafni Reykjanesbæjar.  Slóðin að Rafbókasafninu er  rafbokasafnid.is .

Einnig má finna efni Rafbókasafnsins á leitir.is
 
Leiðbeiningar má nálgast á vefslóðinni: https://sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn/safnakostur/rafbokasafnid og senda má fyrirspurnir á netfangið rafbokasafnid@reykjanesbaer.is
 
Starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar aðstoðar einnig við uppsetningu Rafbókasafnsins sé þess þörf.