Rafbækur til útláns

Í Bókasafni Reykjanesbæjar er nú hægt að fá lánuð lesbretti.

Lesbretti geyma fjöldan allan af rafbókum, íslenskum og enskum, sem komnar eru úr höfundarrétti.

 

Með lesbrettunum fylgja leiðbeiningar um notkun og við hvetjum korthafa eindregið til að prufa þessa nýjung á safninu.

 

Lesbrettin eru lánuð í 30 daga í senn, líkt og bækur. Einföld og þægileg í notkun.