Nýtt útlit fyrir gegnir.is

Nýtt útlit fyrir vefinn gegnir.is verður opnað 15. febrúar næstkomandi. Frá og með þeim tíma verður notendum sem fara inn á slóðina gegnir.is vísað yfir í nýja útlitið.

Nýi vefurinn er unninn í sama umhverfi og leitir.is og býður upp á fjölþætta leitar- og umsýslumöguleika. Hægt verður að ferðast á milli leitir.is og nýja gegnir.is með einföldum hætti og þannig leita ýmist aðeins í Gegni eða í öllum þeim fjölbreytta safnkosti sem er í leitir.is.